þá er lengsta helgi ársin liðin en þó er ekki hægt að kvarta þar sem tímabil langra helga og frídaga er nú framundan. Uppstillingardagur, fyrsti maí og sumardagurinn fyrsti hjómar sem fegursta tónlist í mínum eyrum.
Páskunum eyddi ég í hinu landinu mínu NORGE í góðum félagskap Mosland Klansins mikla. Ég flaug til Osló eftir vinnu á miðvikudaginn og var komin upp í norsku Alpanna: Hovden seinnipartinn daginn eftir. Þar dvöldum við Erlend ásamt allri stórfjölskyldu hans í fjallakofa eða Hytte eins og innfæddir vilja gjarnan kalla hýbýlin. Þetta var mikil og nauðsynleg afslöppun. Veðrið var með besta móti og nýfallin snjór í brekkunum á hverjum morgni. Við vorum á bretti allann föstudag og Laugardag og förum svo í gönguskíðatúr á sunnudaginn.
Ég er bara orðin nokkuð góða á snjóbretti þó ég segi sjálf frá. En ég er allaveganna orðin alveg ástfangin af þessu sporti. Þetta er miklu auðveldara heldur en maður býst við. Ég býst við að það hjálpi manni af hafa aldrei vanist svigskíðum því þá kemur samæfingin fljótar (þetta er svo allt öðruvísi hreyfing en skíði) Eftir tvo daga í fjallinu er ég sólbrennd og með stærsta mar sem ég hef séð á lærinu og 5 hné en reynslunni ríkari.
Þegar við vorum ekki upp í brekku þá sloöppuðum við af í kofanum og borðuðum góðan mat, hlustuðum á Onkle Hans lesa upp úr hinni heilögu ritningu og spiluðum kana. ásamt Erlend og foreldrum hans voru þarna Kari og Steinar, Hans og Janne, Christina, Magnus, Maarten, Margrete, Mormor og fleiri og fleiri.
Á mánudaginn var ég svo í Osló en þar sem það var annar í páskum voru allar búðir lokaðar og ég næstum grét fyrir utan læstar dyr H&M á karl Johann götu.
Frábærir páskar.
Það er svo mikið vor í lofti að það er yndislegt, og marft að láta sér hlakka til
Ég er að fara til Barcelona um hvítasunnuhelgina að hitta Ástralíufólk, Mjög sennilega mun ég skella mér á Roskilde festival og svo er ég að fara kaupa mér hjól til að nota björt vorkvöld í útiveru. Önnur markmið sumarsin eru að klífa Hvannadalshnjúk, Kristínartinda og Sveinstind, labba laugarveginn, og kafa í Þingvallarvatni Já sumarið er svo sannarlega tíminn og vorið kitlar mig óstjórnlega mikið í dag